
25. ágúst, 2017
EINS OG SKOT – ÁHÖFNIN Á HALASTJÖRNUNNI
Eftir velgengni Söngævintýrsins um Hans & Grétu hafði Gylfi Ægisson aftur samband við Palla og bauð honum að vera messagutti um borð í Halastjörnunni. Þarna var Áhöfnin á Halastjörnunni, ásamt Gylfa Ægissyni, eitt það heitasta í bransanum vegna fyrstu plötu hennar “Meira salt”, sem innihélt hið gríðarlega vinsæla “Stolt siglir fleyið mitt”.
Á þessari Halastjörnuplötu “Eins og skot”, söng Palli (11 ára) eitt lag, Sonur Sjómannsins. Það hlaut ágætar viðtökur í Óskalagaþætti sjómanna “Á frívaktinni”, enda voru flest lögin af þessari plötu klæðskerasniðin fyrir þann útvarpsþátt. Þú getur hlustað á “Son sjómannsins” með því að smella á hnappinn “Tónlist” hér á þessari heimasíðu.